Fótbolti

Sextán ára markvörður klúðraði síðustu vítaspyrnunni fyrir AC Milan | Myndband

AC Milan og Real Madrid gerðu markalaust jafntefli í lokaleik liðanna í International Champions Cup mótinu rétt í þessu í Sjanghæ. Þurfti því vítaspyrnukeppni til að útkljá leikinn.

Fengu allir leikmenn liðanna að spreyta sig en í stöðunni 10-9 varði Casilla frá hinum 16 árs gamla Gianluigi Donnarumma, markverði AC Milan og tryggði með því að Real Madrid endaði efst í International Champions Cup riðlinum sem fór fram í Kína.

Myndband frá vítaspyrnukeppninni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×