Lífið

Sex vikna ferðalag á sex mínútum

Félagarnir Frosti Logason og Sigurður Þorsteinsson luku á dögunum sex vikna ferðalagi sínu um Asíu og Afríku, sem gengið hefur undir nafninu Asíafríka.

Þeir félagar hafa leyft lesendum Vísis að fylgjast með ferðalaginu í máli, myndum og myndböndum.

Nú hafa þeir tekið saman síðasta myndbandið úr ferðinni, þar sem sjá má glefsur frá ferðalaginu öllu. Þar fara þeir meðal 
annars í safarí í Suður-Afríku, flakka um Indland, fara á brimbrettanámskeið á Balí, læra að kafa í Taílandi, klifra upp í draugaturninn í Bangkok og fara á vélmennadiskó í Tókýó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×