Innlent

Sex þúsund málsskjöl i Aurum málinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þúsundir málsskjala eru í Aurum-málinu.
Þúsundir málsskjala eru í Aurum-málinu. Mynd/ GVA.
Málsskjölin í Aurum málinu eru um sex þúsund blaðsíður, samkvæmt heimildum Vísis. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum snýst málið um ákæru á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, sem var aðaleigandi bankans, og tveimur starfsmönnum hans. Þeim er gefið að sök umboðssvik með því að sex milljarða króna lán hafi verið veitt úr Glitni, án nægra trygginga. Ákæran var gefin út á fimmtudagskvöld.

Á meðal málsskjala eru gögn sem sérstakur saksóknari segir að beri með sér að Jón Ásgeir hafi haft mikil, bein og óeðlileg afskipti af daglegum rekstri Glitnis og mikil ítök og áhrif. Þessum áhrifum sínum hafi hann einkum beitt gagnvart Lárusi og Bjarna Jóhannessyni, þáverandi viðskiptastjóra Glitnis banka, en þeir eru báðir ákærðir. Þá segir sérstakur saksóknari að tölvupóstar, sem liggi til grundvallar í málinu, sýni að Lárus hafi fengið reglulega erindi með fyrirmælum. Þessi gögn hafi öll verið áframsend á starfsmenn bankans. Jón Ásgeir hefur reyndar neitað því, í skriflegum svörum til Vísis, að hafa beitt Lárus þrýstingi.

Samkvæmt heimildum Vísis hefur sérstakur saksóknari lokið rannsóknum í nokkrum málum, sem enn hefur ekki verið gefin ákæra út í. Málsskjölin í mörgum þeirra eru svipuð að fjölda og í Aurum málinu.


Tengdar fréttir

Lárus og Magnús Arnar ákærðir sem aðalmenn

Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fjórum mönnum í Aurum-málinu svokallaða, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding, Magnúsi Arnari Arngrímssyni og Bjarna Jóhannessyni. Þeir eru ákærðir fyrir umboðssvik í tengslum við sex milljarða lánveitingu Glitnis í maí 2008.

Jón Ásgeir gaf Lárusi tilefni til að óttast um stöðu sína

Sérstakur saksóknari hefur undir höndum gögn sem benda til þess að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi gefið Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, tilefni til þess að óttast um stöðu sína innan Glitnis léti Lárus ekki að vilja hans. Þetta kemur fram í ákæru í Aurum málinu, þar sem fjórir menn eru ákærðir fyrir sex milljarða lánveitingu frá Glitni vegna kaupa á Aurum.

Fjórir ákærðir fyrir umboðssvik

Þrír fyrrum stjórnendur Glitnis og fyrrum stjórnarformaður aðaleiganda bankans hafa verið kærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í þeim. Málið snýst um sex milljarða króna lánveitingu til kaupa á Aurum Holding.

Sakaður um að hafa beitt starfsmenn Glitnis þrýstingi í Aurum-málinu

Með sex milljarða lánveitingu frá Glitni banka til að fjármagna kaup FS38 á 25,7% hlut Fons í Aurum Holding var áhættunni af kaupunum velt yfir á Glitni banka. Þetta kemur fram í ákæru sem sérstakur saksóknari gaf út fyrir helgi í Aurum málinu. Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Magnús Arnar Arngrímsson, þáverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis banka, eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánsins.

Jón Ásgeir segir sakamálið skáldað

Jón Ásgeir Jóhannesson segir í yfirlýsingu sem hann sendi til Fréttablaðsins að Aurum málið sé skáldað sakamál. Hann segir að sakarefni sem á sig eru borin standist ekki skoðun.

Sérstakur saksóknari tjáir sig ekki um rannsóknina á Aurum

Fram hefur komið í fréttum að grunur leikur á að Glitnir hafi veitt félaginu FS38 sex milljarða lán árið 2008 til kaupa á eignarhlut Fons í breska félaginu Aurum Holdings, sem er umsvifamikið fyrirtæki í rekstri skartgripaverslana. Bæði Fons og FS38 voru í eigu Pálma Haraldssonar. Grunsemdir eru um að kaupverðið hafi verið margfalt hærra en raunvirði hlutarins og að lánveitingin hafi meðal annars verið framkvæmd til að losa um tvo milljarða króna í reiðufé, annan fyrir Pálma og hinn fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson.Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, vill ekkert tjá sig um stöðu Aurum málsins. Fréttavefur DV fullyrti í kvöld að búið væri að gefa út ákæru í málinu. Ekki væri vitað hverjir eru ákærðir.

Jón Ásgeir og Lárus ákærðir vegna Aurum

Sérstakur saksóknari gaf í gær út ákæru á hendur fjórum mönnum vegna svokallaðs Aurum Holdings-máls. Á meðal ákærðra eru athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Jón Ásgeir um Aurum málið: Nýbúið að selja félagið á 36 milljarða

Jón Ásgeir Jóhannesson hefur ekki svararð ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Fréttablaðið fullyrðir í dag að hann og Lárus Welding hafi verið ákærðir í svokölluðu Aurum máli, en eftir því sem Vísir kemst sem ákærður hefur verið í svokölluðu Aurum máli, hefur ekki svarað ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Vísir hefur aftur á móti undir höndum bréf sem hann sendi sérstökum saksóknara vegna rannsóknar málsins þann 10. desember

Segir Glitni hafa verið betur tryggðan eftir viðskiptin

Vísir leitaði viðbragða frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni vegna ákæru sérstaks saksóknara í Aurum-málinu, en ákæran var birt opinberlega í dag. Jón Ásgeir vísaði á svar sitt í Fréttablaðinu á föstudaginn. Í yfirlýsingunni sagði Jón Ásgeir að Aurum málið væri skáldað sakamál. Hann segir að sakarefni sem á sig eru borin standist ekki skoðun. Orðrétt segir Jón Ásgeir:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×