Fótbolti

Sex mörk á hálftíma hjá Blikastúlkum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Blikastúlkur fögnuðu í dag.
Blikastúlkur fögnuðu í dag. vísir/hanna
Breiðablik er komið í 32-liða úrslit í Meistaradeild Evrópu eftir risasigur, 8-0, á Cardiff Met í Wales í dag.

Blikar voru í forkeppnisriðli með þremur öðrum liðum og þurftu að vinna sannfærandi sigur í dag til þess að tryggja sér efsta sætið í riðlinum.

Það var heldur betur gert með stæl því eftir aðeins 30 mínútna leik var staðan orðin 6-0 fyrir Breiðablik.

Breiðablik endaði með sama stigafjölda og Spartak Subotica en með miklu betri markamun, eða tíu mörk, og fer því áfram inn í 32-liða úrslitin.

Svava Rós Guðmundsdóttir og Rakel Hönnudóttir skoruðu báðar tvö mörk í dag. Fanndís Friðriksdóttir skoraði úr víti og þær Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir og Esther Rós Arnarsdóttir komust einnig á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×