Golf

Sex með á EM einstaklinga og hafa aldrei verið fleiri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Bóasson hefur náð bestum árangri á Evrópumeistaramóti einstaklinga í golfi.
Axel Bóasson hefur náð bestum árangri á Evrópumeistaramóti einstaklinga í golfi. Mynd/Gsimyndir.net
Sex íslenskir áhugakylfingar hefja leik á morgun, miðvikudag, á Evrópumeistaramóti einstaklinga í golfi sem fram fer í Slóvakíu en þetta er metfjöldi íslenskra kylfinga á slíku móti.

Leikið verður á Penati golfvallasvæðinu þar sem tveir 18 holu vellir eru en Jack Nicklaus hannaði báða vellina.

Aðeins stigahæstu kylfingarnir á heimslista áhugamanna fá keppnisrétt á þessu móti og er þetta metfjöldi hjá Íslendingum sem er ánægjuefni.

Þeir sem taka þátt fyrir Íslands hönd er: Axel Bóasson (GK), Andri Þór Björnsson (GR), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Bjarki Pétursson (GB) og Gísli Sveinbergsson (GK). Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari Íslands er með í för og verður keppendum til halds og trausts.

Haraldur Franklín og Ragnar Már Garðarsson úr GKG tóku þátt í fyrra á þessu móti þegar það fór fram í Skotlandi. Þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að keppt er í höggleik og að loknum öðrum keppnisdegi komast 60 efstu áfram á lokakeppnisdagana tvo. Alls eru 144 keppendur sem komast inn á þetta sterka mót.

Margir þekktir kylfingar hafa sigrað í þessu móti. Ashley Chesters frá Englandi varði titilinn í fyrra en á meðal þeirra sem hafa sigrað má nefna; Victor Dubuisson (Frakkland) 2009, Rory McIlroy (Norður-Írland) 2006 og Sergio Garcia (Spánn) 1995.

Axel Bóasson úr Keili á bestan árangur allra Íslendinga á þessu móti en hann endaði í 8.-12. sæti árið 2012. Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, endaði í 9. sæti árið 1993.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×