Erlent

Sex lík fundust í einbýlishúsi í Austurríki

Atli Ísleifsson skrifar
Húsið í Böheimkirchen.
Húsið í Böheimkirchen. Vísir/AFP
Lögregla í Austurríki hefur fundið sex lík í einbýlishúsi nærri bænum Böheimkirchen, um 40 kílómetrum vestur af höfuðborginni Vín.

Austurrískir fjölmiðlar segja að svo virðist sem að 35 ára kona hafi skotið fjölskyldu sína til bana áður en hún svipti sig lífi.

Lögregla hefur enn ekki tjáð sig um málið en að sögn APA-fréttastofunnar virðist konan hafa skotið þrjú börn sín, sem voru á aldrinum sjö til tíu ára, auk móður sinnar og bróður.

Kronen Zeitung segir að börn konunnar hafi ekki mætt í skólann síðustu dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×