Sex líffæri grædd í litla stúlku

Fréttablaðið Erlent 06. febrúar 2012 05:00
Alannah ræddi við blaðamann ásamt ömmu sinni í síðustu viku. Hún hefur verið á spítala undanfarna þrjá mánuði að jafna sig eftir aðgerðina. 
fréttablaðið/ap
Alannah ræddi við blaðamann ásamt ömmu sinni í síðustu viku. Hún hefur verið á spítala undanfarna þrjá mánuði að jafna sig eftir aðgerðina. fréttablaðið/ap
Níu ára gömul stúlka frá Maine í Bandaríkjunum er á batavegi eftir að hafa gengist undir sexfalda líffæraígræðslu vegna krabbameins. Hún er að öllum líkindum fyrsta manneskjan til að fá vélinda grætt í sig.

Stúlkan, Alannah Shevenell, fékk nýjan maga, lifur, milta, smáþarma, bris og hluta af vélinda. Hún greindist með risastórt æxli árið 2008, þegar hún var fimm ára.

Læknar reyndu í tvígang að fjarlægja æxlið án árangurs. Lyfjameðferð hafði ekki heldur áhrif á æxlið og því var ákveðið að reyna aðgerðina. Fjölskyldu hennar var sagt að um helmingslíkur væru á því að hún lifði aðgerðina af, en án hennar átti hún enga batavon. Aðgerðin var framkvæmd í október og stúlkan var á spítala þar til í síðustu viku. Hún barðist við sýkingar og aðra fylgikvilla áður en hún fékk leyfi til að fara heim.

Alannah er þó ekki úr hættu enn. Hún þarf að vera undir stöðugu eftirliti og taka níu lyf á hverjum degi. Ónæmiskerfi hennar er mjög veikt og hún getur því ekki verið innan um mikið af fólki. - þeb

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 26. maí. 2012 09:45

Blóðbað í Sýrlandi

Þjóðarráðið í Sýrlandi, stærstu samtök andspyrnumanna í landinu, hafa farið fram á að Öryg...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 11:00

Íranar geta sett saman kjarnorkusprengjur

Íranar hafa á síðastliðnum fimm árum auðgað það mikið úran að þeir geta nú sett saman um f...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 09:16

Skotárás í Finnlandi - maðurinn handtekinn

Piltur og stúlka létu lífið í skotárás í finnsku borginni Hyvinkaa í nótt, þau voru bæði á...  

Meira
Erlent 26. maí. 2012 05:00

Andstæður mætast í seinni umferðinni

Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslima keppir að öllum líkindum við Ahmed Shafik, ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 23:00

Blaðamaður í kókaínsmygli

Blaðamaður í Kaupmannahöfn, sem skrifaði um fíkniefnaviðskipti, hefur verið dæmdur í sex á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:40

Kattarkona í Ísrael tók að sér 550 ketti

Maður frá Ísrael sótti um skilnað frá eiginkonu sinni á dögunum. Slíkt þykir nú varla frét...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 23:00

Eitrað fyrir skólastúlkum

Eitrað var fyrir 120 skólastúlkum og þremur kennurum þeirra í skóla í Takhar í Afganistan ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 21:14

Ótrúlegir hæfileikar hjá kisa

Kötturinn Óskar hefur heldur betur slegið í gegn á internetinu síðustu daga en hann er gæd...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:40

Bræ'ðralag múslima segist hafa forystu

Talning atkvæða er sumstaðar hafin í Egyptalandi en kosið var um nýjan forseta landsins í ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:36

Þingmenn slógust í þingsal

Þingfundur í Úkraínu leystist upp í allsherjar áflogum í gær. Slagsmálin brutust út á mill...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 09:14

Getnaðarvarnarpilla fyrir karlmenn í sjónmáli

Vísindamenn eygja nú möguleika á því að þróa getnaðarvarnarpillu fyrir karlmenn. Genafræði...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:53

Mörgæs á flótta handsömuð í Tókíó

Yfirvöld í Japan hafa loksins handsamað mörgæs sem flúði úr sædýrasafni í Tókíó fyrir tvei...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 11:00

Ætlar ekki að áfrýja dómi

Noregur Anders Behring Breivik mun ekki áfrýja fangelsisdómi yfir sér ef hann verður úrsku...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:57

Hollande heimsækir Afganistan

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakka mætti óvænt í heimsókn til Afganistan í morgun...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:00

Læknast hraðar og síður veikir

Karlkyns bavíanar sem eru í ráðandi stöðu í sínum hóp verða sjaldnar veikir og sár þeirra ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 07:30

Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook

Kærumál streyma inn vegna vandræðagangs við markaðsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 05:30

Mannréttindabrot framin á báða bóga

Bæði stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Me...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 04:00

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróðir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúið heimabæ s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Sex líffæri grædd í litla stúlku