Innlent

Sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð: „Það hættulega í þessu tilfelli var að vegurinn var ekki lokaður“

Birgir Olgeirsson skrifar
Pétur G. Markan segir löngu kominn tíma á Álftafjarðargöng á samgönguáætlun en sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð aðfaranótt mánudags.
Pétur G. Markan segir löngu kominn tíma á Álftafjarðargöng á samgönguáætlun en sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð aðfaranótt mánudags. Vísir
Sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð í Álftafirði þegar vitlaust veður gekk yfir Vestfirði aðfaranótt mánudags. 22 snjóflóðagil eru í Súðavíkurhlíð en vegirnir um hana og Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði, þar sem einnig eru þekkt snjóflóðagil, er leiðin á milli Súðavíkur og Ísafjarðar.

Sú leið er tenging íbúa Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkurkaupstaðar við meginlandið og er sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, Pétur G. Markan, þeirrar skoðunar, sem og margir aðrir íbúar þessa svæðis, að nú sé kominn tími á að ríkið viðurkenni hættuna sem er af þessum vegi með því að koma Álftafjarðargöngum á samgönguáætlun.

Hluti þeirra flóða sem féllu á veginn um Súðavíkurhlíð aðfaranótt mánudags.Vísir/Pétur Markan
Vegurinn um hlíðina ekki lokaður

„Það hættulega í þessu tilfelli var að vegurinn var ekki lokaður,“ segir Pétur um krapaflóðin sem féllu á veginn um Súðavíkurhlíð aðfaranótt mánudags. „Stundum ná menn að spá fyrir um snjóflóðin og loka hlíðinni en í þessu tilfelli var hún ekki lokuð. Með auðveldum hætti hefði einhver geta verið þarna á ferð og fengið þetta á sig og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum,“ segir Pétur. 

Hann segir hljóðið ekki aðeins þungt í Súðvíkingum vegna þessa ástands heldur einnig þeirra sem búa í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík. „Við megum ekki gleyma að það er umferð í báðar áttir, þannig að hættan er gífurlega mikil fyrir fólk sem býr á norðanverðum Vestfjörðum sem nýtir þessa leið.“

Þingmenn vilja Álftafjarðargöng á samgönguáætlun 

Ísfirski fréttamiðillinn Bæjarins besta greinir frá því í dag að Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun flytja þingsályktunartillögu á Alþingi á næstu dögum þess efnis að Álftafjarðargöng fari inn á samgönguáætlun. Ólína gerði það einnig árið 2013 en hafði ekki erindi sem erfiði. Meðflutningsmenn hennar eru þingmenn úr Norðvesturkjördæmi, Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis, Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Vinstri grænna, Jóhanna Sigmundsdóttir þingmaður Framsóknarflokks, Haraldur Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokks og Elsa Lára Arnardóttir þingmaður Framsóknarflokks.

Leiðin á milli Ísafjarðar og Súðavíkur.Vísir/Loftmyndir
Daglegar ferðir tvöfalda árlegar dánarlíkur

Árið 2006 var gerð skýrsla þar sem áhætta vegfarenda var metin sem ferðast um vegina um Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð. Var niðurstaða skýrslunnar sú að fyrir þá sem ferðast daglega um Súðavíkurhlíð er snjóflóð- og grjóthrunshættan nálægt því að tvöfalda árlegar dánarlíkur í umferðinni, sé miðað við meðaldánarlíkur Íslendinga í umferðinni, sem er talið afar óviðunandi.

„Þessi úttekt á Súðavíkurhlíð dregur fram þá staðreynd að þetta er með hættulegustu vegum landsins. Miðað við þá niðurstöðu er mjög eðlilegt að Álftafjarðargöng verði sett inn á samgönguáætlun, við biðjum ekki um annað, þannig að ríkið sýni allavega skilning á því að hér þurfi á einhverjum tímapunkti að koma göng,“ segir Pétur.

Dýrafjarðargöng, á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, fara væntanlega í útboð síðar á árinu og segir Pétur það vera eðlilega kröfu að Álftafjarðargöng verði sett á samgönguáætlun í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×