Lífið

Sex kíló fokin á mánuði

Friðrik Dór tekur vel á því í róðrartækinu. Hann hefur verið í stífri einkaþjálfun undanfarinn mánuð og misst heil sex kíló. fréttablaðið/vilhelm
Friðrik Dór tekur vel á því í róðrartækinu. Hann hefur verið í stífri einkaþjálfun undanfarinn mánuð og misst heil sex kíló. fréttablaðið/vilhelm
„Fólk var farið að tala um að ég væri orðinn svo bangsalegur. Ég er að reyna að eyðileggja þessa bangsaímynd,“ segir popparinn Friðrik Dór, sem er í stífri einkaþjálfun um þessar mundir.

Fyrsta sólóplatan hans, Allt sem þú átt, kemur út á fimmtudaginn og Friðrik Dór vill líta sem allra best út þegar hann kynnir hana. Einkaþjálfunin hófst fyrir um mánuði hjá frjálsíþróttakonunni fyrrverandi, Silju Úlfarsdóttur, og á þeim tíma hefur Friðrik misst heil sex kíló. „Ég þekki hana frá fornu fari þegar ég var í fótboltanum,“ segir hann um Silju. „Þetta hefur gengið bara mjög vel. Það hafa verið nokkrir erfiðir hjallar að klífa en ég hef komist yfir þetta að lokum. Þegar maður ætlar að fara sem víðast með sjálfan sig verður maður að líta vel út.“

Leiðir Friðriks og Silju lágu saman á skemmtistaðnum Vegamótum: „Þá sagði Silja við mig að enginn vildi hlusta á feita poppstjörnu. Þar með hófst þetta,“ segir hann og hlær. Æfingarnar snúast mikið um ólympískar lyftingar og aðaláherslan er að ná upp góðri brennslu. Róðrartæki, hefðbundnar lyftingar og hlaup einu sinni í viku eru einnig hluti af prógramminu.

Að sjálfsögðu þarf mataræðið líka að vera í lagi og Friðrik passar vel upp á það sem hann lætur ofan í sig. „Nú er það ekkert nema hrökkkex og prótínhristingur. Helgarnar geta verið erfiðar. Ef maður hefur farið villt í laugardagskvöldin geta sunnudagarnir orðið erfiðir. En maður reynir að standa sig og fara eftir þeim reglum sem hún setur. Maður má ekki falla í sömu gryfjuna aftur því bangsaímyndin er ekki það sem maður vill.“

Popparinn efnilegi er að vonum spenntur fyrir nýju plötunni, sem hann vann með upptökuteyminu Redd Lights. „Ég er mjög ánægður með útkomuna. Hún tók miklum framförum á síðustu metrunum þessi plata og varð betri en ég átti von á. Ég er virkilega ánægður með hana.“

freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×