Handbolti

Sex íslensk mörk er Kristianstad fór á toppinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslendingatríóið hjá Kristianstad.
Íslendingatríóið hjá Kristianstad. vísir/hanna
Íslendingaliðið Kristianstad komst í kvöld aftur á topp sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þá valtaði Kristianstad yfir lið Hammarby, 33-21.

Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum fyrir Kristianstad og gaf þrjár stoðsendingar. Þess utan tapaði hann boltanum aðeins einu sinni í leiknum.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk úr þremur skotum fyrir Kristianstad en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað.

Örn Ingi Bjarkason skoraði tvö mörk úr tveimur skotum fyrir Hammarby sem er í tólfta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×