Enski boltinn

Sex Evrópumeistarar Þýskalands spiluðu í stórsigrinum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Benedikt Höwedes, Mats Hummels, Mesut Özil, Sami Khedira og bandaríski landsliðsmaðurinn Fabian Johnson fagna Evrópumeistaratitlinum.
Benedikt Höwedes, Mats Hummels, Mesut Özil, Sami Khedira og bandaríski landsliðsmaðurinn Fabian Johnson fagna Evrópumeistaratitlinum. vísir/getty
Þýskaland er komið í úrslitaleikinn á HM eftir stórsigur á heimamönnum frá Brasilíu, 7-1, í ótrúlegum fótboltaleik í Belo Horizonte á þriðjudagskvöldið.

Úrslitaleikurinn, og mögulegur heimsmeistaratitill, verður kirsuberið ofan á kökuna fyrir Þjóðverja og uppbyggingu knattspyrnunnar þar í landi undanfarinn áratug.

Þegar Jürgen Klinsmann tók við Þjóðverjum árið 2004 hófst mikil uppbygging þar sem til dæmis 20.000 grunnskólakennurum var kennt að þjálfa yngri flokka. Grasrótin var tekin algjörlega í gegn.

Menntun knattspyrnuþjálfara var aukin og sett var í gang verkefni sem átti sér að skila titlum, jafnt í yngri flokkum sem og hjá A-landsliðinu á komandi árum.

Hvorki Scott Noble (sitjandi) né Lee Cattermole hafa spilað A-landsleik fyrir England.vísir/getty
Sá hópur sem hefur haft hvað mest áhrif á þýska landsliðið eins og það er í dag er Evrópumeistaralið Þýskalands á U21 árs mótinu í Malmö í Svíþjóð árið 2009.

Þar valtaði Þýskaland yfir England, 4-0, í úrslitaleik, en sex af leikmönnunum í byrjunarliði Þjóðverja í þeim leik voru í byrjunarliðinu gegn Brasilíu á þriðjudaginn á HM.

Þetta eru þeir ManuelNeuer, BenediktHöwedes, JéromeBoateng, MatsHummels, SamiKhedira og MesutÖzil. Özil skoraði eitt af mörkunum fjórum í úrslitaleiknum og var valinn maður leiksins.

Samtals hafa þessir sex strákar spilað 270 A-landsleiki, en þeir fimm sem eiga A-landsleiki úr byrjunarliði Englands í sama leik (MicahRichards, KieranGibbs, JamesMilner, AdamJohnson og TheoWalcott) hafa samtals spilað 110 landsleiki fyrir England.

James Milner er eini Englendingurinn úr hópnum frá 2009 sem var með A-landsliðinu í Brasilíu, en taka skal þó fram að Theo Walcott hefði farið með væri hann ekki meiddur.

Á sunnudaginn geta þessir sex Þjóðverjar orðið heimsmeistarar saman, fimm árum eftir að þeir urðu Evrópumeistarar U21 árs liða. Það er nokkuð merkilegt að halda svona hópi saman og til merkis um hversu vel uppbyggingin heppnaðist í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×