Viðskipti innlent

Setur á sig fótinn og hundurinn tryllist

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gísli Marteinn Baldursson dáist hér að hinum  nýja fæti, ásamt Guðmundi og Kristleifi.
Gísli Marteinn Baldursson dáist hér að hinum nýja fæti, ásamt Guðmundi og Kristleifi. Mynd/Advania
„Í sannleika sagt þá fékk ég tár í augun. Ég hljóp um allt og faðmaði fólk. Ég grét af gleði,“ segir Guðmundur Ólafsson um augnablikið þegar hann prófaði í fyrsta sinn nýjan gervifót sem hann hefur hefur unnið að með stoðtækjafyrirtækinu Össuri í rúman áratug. Tæknin á bakvið stoðtækið er sögð byltingarkennd en hún gerir notandanum kleift að hreyfa fótinn með hugsunum einum saman.

Guðmundur Ólafsson lét fjarlægja hægri fót sinn fyrir neðan hné í upphafi aldarinnar. „Ég bjó við stanslausan sársauka í 28 ár,“ segir Guðmundur sem var gestur á Haustráðstefnu Advania í morgun þar sem hann, ásamt Kristleifi Kristjánssyni frá Össuri, greindi frá hinum nýja gervifæti. Fyrstu árin eftir aflimunina reiddi Guðmundur sig á Proprio-fót frá Össuri, rafdrifið stoðtæki sem aðlagaði sig að undirlaginu hverju sinni. Ólíkt fætinum sem kynntur var á ráðstefnunni í dag keyrði sá fótur á sjálfstýringu án mikillar aðkomu notandans.

Byltingarkennd tækni

Rúmlega eitt og hálft ár er síðan Guðmundur uppfærði fótinn. Nú, eftir að skynjari var græddur í fótlegg Guðmundar, getur hann í raun „sagt“ gervifætinum til verka – með heilabylgjunum einum saman. „Þetta er hálf furðulegt því það var ég sem hélt um stjórntaumana, en ekki fóturinn,“ sagði Guðmundur í Hörpu í dag um þegar hann lýsti því hvernig það hafi verið að setja á sig gervifótinn í fyrsta skiptið. Og tilfinningarnar voru ekki langt undan, rétt eins og ummælin hér í upphafi fréttar gefa til kynna.

Kristleifur Kristjánsson, sem er lækningalegur framkvæmdastjóri hjá stoðtækaframleiðandanum, tjáði gestum að hér væri um að ræða fyrsta gerviliminn fyrir neðri hluta líkamans sem hægt er að stýra með heilavirkni. Fyrri stoðtæki með slíka virkni hafa til þess einungis verið til boða fyrir efri hluta líkamans, svo sem hendur og fingur, og því er raunverulega um byltingu í framleiðslu gervilima að ræða. Ekki einungis gerir fóturinn notandanum kleift að hagræða ökklanum eftir því hvert undirlagið er hverju sinni, hvort sem ferðinni er heitið upp stiga eða niður brekku, heldur mun hann í fyllingu tímans geta numið áferð undirlagsins. Þannig mun notandinn „finna“ fyrir undirlaginu, rétt eins og á við um il mannslíkamans.

Fætur fyrir hvert tilefni

Eftir langt og farsælt samstarf við Össur á Guðmundur nú feiknarstórt stoðtækjasafn , fimmtán gervifætur í það heila, sem hver hefur sitt afmarkaða hlutverk. Þannig getur hann skipt um stoðfót eftir því hver dagskráin er hverju sinni. „Ég á hlaupafót, sundfót, göngufót og ég á jafnvel sérstakan gormafót sem frábær til að hoppa á,“ sagði Guðmundur í dag og bætti við að heimilislíf sitt hefði svo sannarlega ekki farið varhluta af tíðum fótaskiptum. „Þegar ég set á mig fótinn, þá veit hundurinn að við erum að fara út að ganga.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×