Sport

Setti Íslandsmet á afmælisdaginn sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Már Gunnarsson gleymir þessum afmælisdegi ekki.
Már Gunnarsson gleymir þessum afmælisdegi ekki. Mynd/ÍF
Það var mikið um að vera í Ásvallarlaug í Hafnarfirði um helgina því Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 25m laug fór þá samhliða ÍM25 hjá Sundsambandi Íslands.

Alls féllu fimm ný Íslandsmet á Íslandsmóti ÍF í sundi en eitt þeirra setti sundmaðurinn Már Gunnarsson frá ÍBR/Nes á sjálfan 17 ára afmælisdaginn sinn en Már keppir í flokki sjónskertra/blindra (S12).

Fjögur metanna komu úr ranni sundmanna ÍFR þar sem Thelma Björg Björnsdóttir setti tvö ný met, Sandra Sif Gunnarsdóttir eitt og blönduð boðsundsveit ÍFR setti einnig met í 4x50m frjálsri aðferð.

Blandaða boðsundsveit ÍFR nauð liðsinnis goðsagnarinnar Kristínar Rósar Hákonardóttur sem lét til skarar skríða og synti. Þess má geta að með henni í sveit var efnileg sundkona sem heitir Heiður Egilsdóttir en hún og Kristín Rós eru náskyldar.

Íþróttasamband fatlaðra vildi nota tækifærið í fréttatilkynningu sinni og koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra er störfuðu við mótið en þau öll eiga mikið hrós skilið í því að hjálpa að halda svona stórt og flott mót.

Íslandsmet helgarinnar:

Már Gunnarsson, S12 -  400 baksund - 4:57,08            19/11/16

Thelma Björg Björnsdóttir, SB5 - 100 bringusund - 1:54,01            19/11/16

Thelma Björg Björnsdóttir, SB5 - 50 bringusund - 0:53,74            20/11/16

Sandra Sif Gunnarssóttir,  S13 - 100 fjórsund - 1:30,78            20/11/16

ÍFR  - Blandað - 4x50 frjáls aðferð -  2:47,24            20/11/16

Blandaða Íslandsmetssveitin.Mynd/ÍF



Fleiri fréttir

Sjá meira


×