Lífið

Setti falda myndavél á brjóstahaldarann til að sjá hver myndi kíkja

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirtækið Nestle Fitness hefur farið af stað með nýja auglýsingaherferð sem heitir #CheckYourSelfie. Sjónvarpsauglýsing herferðarinnar hefur vakið talsverða athygli en tilgangur hennar er að vekja athygli á baráttunni gegn brjóstakrabbameini.

Í auglýsingunni sést leikkonan Eloise Oliver festa falda myndavél á bleikan brjóstahaldara sinn sem sést undir grárri peysu.

Hún fer síðan í gegnum hefðbundinn dag í Lundúnaborg, fer í lestina, fær sér kaffi, fer í vinnuna og fleira í þeim dúr. Með myndavélinni telur hún hve margir horfa á barm sinn en tæplega fjörutíu manns kíkja á brjóst hennar í myndbandinu sem er rúmlega mínútu langt.

Skilaboð myndbandsins eru eitthvað á þessa leið:

„Brjóstin þín eru skoðuð á hverjum degi. Hvenær fórst þú síðast í skoðun?“

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×