Menning

Setjum efnið í leikrænan búning

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Okkar draumur var alltaf að halda tónleika með lögum Karls Ottós sem er svo mikið afbragðs tónskáld,“ segir Jón Svavar sem hér er lengst til vinstri.
"Okkar draumur var alltaf að halda tónleika með lögum Karls Ottós sem er svo mikið afbragðs tónskáld,“ segir Jón Svavar sem hér er lengst til vinstri.
„Þetta verður eiginlega tónleikhús. Við setjum efnið í leikrænan búning undir stjórn Friðgeirs Einarssonar og böðum okkur bæði í vatni og reyk. Lögin hans Karls Ottós eru samt aðalatriðið,“ segir Jón Svavar Jósefsson barítón um skemmtun í Iðnó á morgun, sunnudag, klukkan 16.

Þar er verið að fagna útgáfu geisladisksins Gekk ég aleinn með sönglögum Karls Ottós Runólfssonar og auk Jóns Svavars sjá Hildigunnur Einarsdóttir messósópran og tónlistarhópurinn Kúbus um flutning þeirra.

Á fimmtudagsmorgun var reyndar sellóleikarinn handleggsbrotinn og píanistinn með flensu en síðdegis sama dag var Jón Svavar bjartsýnn.

„Það hoppaði annar sellisti inn og píanistinn er allur að koma til svo við ætlum að kýla á þetta.“ Tónlistarhópurinn Kúbus var stofnaður á síðasta ári. Í þeim hópi er Guðrún Dalía píanóleikari en hún og Jón Svavar hafa átt áralangt samstarf að hans sögn.



„Okkar draumur var alltaf að halda tónleika með lögum Karls Ottós sem er svo mikið afbragðs tónskáld. Það varð úr að Kúbus ásamt mér og Hildigunni ákváðum að halda tónleika og fengum Hjört Jóhannsson píanóleikara úr Hjaltalín til að útsetja fyrir okkur 16 lög. Svo keyrðum við á Karolina Fund, söfnuðum 8.000 evrum og erum komin með disk í hendur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×