Erlent

Sessions sagði að af sér væri gerð skrípamynd

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Jeff Sessions sór eið frammi fyrir þingnefnd.
Jeff Sessions sór eið frammi fyrir þingnefnd. Nordicphotos/Getty
Jeff Sessions, verðandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagðist í gær ekki haldinn neinum kynþáttafordómum er hann var spurður út í fyrri ummæli í þá veru. 

Sessions sagðist jafnframt fyrirlíta Ku Klux Klan samtökin og hugmyndafræði þeirra. Ásakanir um að hann hafi einhvern tímann stutt þessi samtök hvítra kynþáttasinna séu úr lausu lofti gripnar.

Þetta sagði Sessions í yfirheyrslu á fundi þingnefndar sem hefur það hlutverk að staðfesta eða hafna tilnefningum í ráðherraembætti.

Fjórtán hundruð lagaprófessorar höfðu undirritað yfirlýsingu þar sem þeir hvöttu nefndina til að hafna Sessions, þannig að hann verði ekki dómsmálaráðherra.

Árið 1986 var honum hafnað í embætti dómara vegna gruns um að hann teldi hvítt fólk hafa yfirburði yfir annað fólk.

Þingnefndarfundurinn í gær var nokkrum sinnum truflaður af fólki í salnum sem gerði hróp að Sessions, sagði hann kynþáttahatara og fasista sem ætti ekki heima í ríkisstjórn.

Þá fullyrti Sessions að hann styðji fullt trúfrelsi og telji alls ekki að torvelda eigi múslimum sérstaklega að flytja til Bandaríkjanna.

Session sagði að árið 1986 hafi hann ekki mætt vel undirbúinn til þess að svara ásökunum um að hann sé haldinn kynþáttafordómum. Sú mynd sem dregin hafi verið upp af honum hafi verið skrípamynd og það hafi verið mjög sársaukafullt. Hann sagðist gera sér fulla grein fyrir því að í Suðurríkjum Bandaríkjanna hafi verið stunduð kerfisbundin mismunun gegn þeldökku fólki: „Ég veit að það var rangt. Ég veit að við verðum að gera betur. Við getum aldrei snúið til baka.“

Sessions sagðist jafnframt ekki mundu taka þátt í málshöfðun gegn Hillary Clinton, sem bæði hann sjálfur og Donald Trump höfðu boðað fyrir kosningarnar í nóvember.

„Ég tel að það væri rétt að ég taki ekki þátt í neinum umræðum um slíkar rannsóknir á hendur Clinton,“ sagði hann við þingnefndina.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×