Menning

Sérútgáfa af Dancing Horizon

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Sigurður Guðmundsson Í Dancing Horizon eru ljósmyndaverk Sigurðar frá 1970 til 1982.
Sigurður Guðmundsson Í Dancing Horizon eru ljósmyndaverk Sigurðar frá 1970 til 1982. Vísir/GVA
„Við bjóðum upp á þann möguleika að fólk geti fengið eitthvað beint frá listamanninum með því að gefa út sérútgáfu,“ segir Kristján B. Jónasson, útgefandi í Crymogeu, sem gefur út sérútgáfu af listaverkabókinni Dancing Horizon eftir Sigurð Guðmundsson í fimmtíu tölusettum og árituðum eintökum. „Sérkenni hennar er að engin tvö eintök eru eins. Hver bók er í sérstöku bandi og með sérstakri þrykkingu þannig að um fimmtíu ólík „verk“ er að ræða.“



Á bak við bókina er að sögn Kristjáns sú hugsun að sá sem eignast bók, eignist bók í sérstökum lit sem viðkomandi er hrifinn af. Þannig sé sérútgáfan í nokkurs konar litasamhljómi við innri mann þess sem kaupir. „Þetta snýst um það að búa til einstakan grip sem kitlar litla safnarann í fólki,“ útskýrir Kristján. „Þetta er útgáfa sem gerir fólki kleift að tengjast listamanninum meira og eignast einstakt verk eftir hann án þess að það setji fjárhaginn í uppnám.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×