Viðskipti innlent

Sérstakur saksóknari ákærir Wernersbræður

Stígur Helgason skrifar
Karli og Steingrími var birt ákæran í gær.
Karli og Steingrími var birt ákæran í gær.
Sérstakur saksóknari birti í gær sex manns ákæru vegna milljarðagreiðslna út úr fjárfestingarfélaginu Milestone til Ingunnar Wernersdóttur árin 2006 og 2007, sem taldar eru varða við hegningarlagaákvæði um umboðssvik.

Á meðal hinna ákærðu eru bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, sem áttu meirihluta í Milestone og sátu í stjórn félagsins, Karl sem stjórnarformaður. Þá er Guðmundur Ólason, sem var forstjóri Milestone, einnig ákærður, eins og þrír endurskoðendur hjá endurskoðunarskrifstofunni KPMG.

Guðmundur Ólason
Ákæran var gefin út á föstudag, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, og verður þingfest í september.

Málið snýst um greiðslur sem runnu út úr Milestone til Ingunnar Wernersdóttur árin 2006 og 2007. Niðurstaða saksóknara er að Karl, Steingrímur og Guðmundur hafi í sameiningu tekið ákvörðun um að greiða Ingunni um 4,8 milljarða á þessu tímabili og losa hana þannig undan eign sinni í Milestone.

Greiðslurnar bárust henni mánaðarlega á löngu tímabili, á grundvelli samkomulags um að hún léti af hendi öll bréf sem hún átti í félaginu.

Ingunn er ekki ákærð í málinu þrátt fyrir að hafa notið ávinnings af meintum brotum, enda var hún ekki í formlegri aðstöðu til að skuldbinda Milestone með þeim hætti sem saksóknari telur að hafi verið refsiverður.

Sexmenningarnir eru meðal annars taldir hafa gerst brotlegir 262. grein almennra hegningarlaga, sem kveður á um að þeir sem gerast sekir um alvarleg brot gegn lögum um bókhald og ársreikninga „til þess að leyna auðgunarbroti sínu eða annarra“ skuli sæta fangelsi allt að sex árum.

Málið hófst fyrir réttum fjórum árum, þegar menn á vegum Sérstaks saksóknara réðust til inngöngu í höfuðstöðvar Milestone, KPMG, Sjóvár og fleiri aðila vegna rannsóknar á málefnum félaganna. Fleiri mál eru þar undir, til dæmis rannsókn á braski með tryggingasjóð Sjóvár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×