Lífið

Sérkennilegt klapp Nicole Kidman vekur mikla athygli

Anton Egilsson skrifar
Nicole Kidman fer sínar eigin leiðar þegar kemur að því að klappa.
Nicole Kidman fer sínar eigin leiðar þegar kemur að því að klappa. Skjáskot
Óskarsverðlaunin voru afhend við hátíðlega athöfn í Dolby leikhúsinu í Hollywood í gærkvöldi. Ýmis eftirminnileg atvik áttu sér stað á hátíðinni í ár en meðal annars var ranglega tilkynnt um verðlaun fyrir bestu kvikmyndina.

Eitt af þeim atvikum sem mikið hefur verið rætt um á samfélagsmiðlum eftir hátíðina er sérkennileg aðferð áströlsku leikkonunnar Nicole Kidman við að klappa en myndband af henni hefur farið eins og eldur í sinu um netheima.

Hin 49 ára Kidman var tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Lion. Hún fór hins vegar tómhent heim en það var Viola Davis sem bar sigur úr býtum í þeim flokki fyrir leik sinn í kvikmyndinni Fences.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×