Innlent

Sér­hæft björgunar­sveitar­fólk kallað út til að leita að Birnu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá leitinni núna í hádeginu.
Frá leitinni núna í hádeginu. Vísir/Þórhildur
Sérhæft björgunarsveitarfólk hefur verið kallað út til að leita að Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið frá því á sjötta tímanum aðfaranótt laugardags.

Samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini G. Gunnarssyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, verður byrjað að leita út frá Laugavegi 31 sem er það svæði þar sem sást seinast til Birnu. Mun björgunarsveitarfólk fínkemba svæðið þar í kring en ekki liggur fyrir hversu margir munu leita þar sem enn er verið að svara útkallinu.

Landsbjörg fundaði í morgun með lögreglu en að sögn Þorsteins hefur svæðisstjórn björgunarsveita verið í gagnavinnu síðan í gærkvöldi vegna leitarinnar. 

Sporhundurinn Perla ásamt Þóri þjálfara sínum.Vísir/Vilhelm
Sporhundurinn Perla leitaði í nótt

Farið var með sporhundinn Perlu út í nótt og leitaði hundurinn við skemmtistaðinn Húrra og í Flatahrauni í Hafnarfirði. Birna var úti að skemmta sér á Húrra en þaðan fór hún um klukkan 5.

Hún sést svo í eftirlitsmyndavélum ganga ein síns liðs austur Austurstræti, Bankastræti og Laugaveg að húsi númer 31. 

Þar hverfur hún sjónum um klukkan 05:25 og lýsti lögreglan í morgun eftir ökumanni rauðs fólksbíls, sennilega af gerðinni Kia Rio, sem ekið var vestur Laugaveg til móts við hús númer 31 um svipað leyti. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hefur ökumaðurinn ekki enn gefið sig fram.

Lögregla hefur lýst eftir ökumanni rauðs fólksbíls, sennilega af gerðinni Kia Rio. Sá hefur ekki enn gefið sig fram.
Allir sem kunna að hafa upplýsingar um ferðir Birnu hafi samband við lögreglu

Birna er 170 sentimetrar á hæð, með sítt ljósrautt hár, klippt með topp fram á ennið.  Hún var klædd í svartar gallabuxur, gráa peysu og svartan flísjakka með hettu.

Þá var hún í svörtum uppreimuðum Dr. Martens skóm. 

Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir Birnu og hvar hún er niðurkomin að hafa samband við lögreglu í síma 444 1109.

Auk þess biður lögreglan ökumann rauða Kia-bílsins að hafa samband auk allar annarra sem voru á ferðinni á þessum slóðum um klukkan 05:25 aðfaranótt laugardags.

Á kortinu má sjá það sem vitað er um ferðir Birnu Brjánsdóttur.vísir
Tilkynning Landsbjargar vegna leitarinnar að Birnu:

Leitarfólk úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið síðan á aðfaranótt sunnudagsins. Um er að ræða sérhæft leitarfólk sem mun einbeita sér að svæðinu þar sem síðast sást til Birnu og leita skipulega út frá því.

 

Svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi og hefur síðan unnið að gagnaöflun með Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem m.a. leiddi til þeirrar sameiginlegu ákvörðunar lögreglu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar að hefja leit á Birnu en laust fyrir miðnætti var óskað eftir aðstoð sporhunds sem bæði í miðborg Reykjavíkur og við Flatahraun í Hafnarfirði.

Frá leitinni í miðbænum.Vísir/Þórhildur

Tengdar fréttir

Sporhundurinn Perla leitaði við Húrra og í Flatahrauni

Farið var með sporhundinn Perlu að skemmtistaðnum Húrra í miðbæ í Reykjavíkur í gær og að Flatahrauni í Hafnarfirði til að leita að Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið síðan á aðfaranótt laugardags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×