Innlent

Sérhæfir sig í G-blettsfullnægingum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn segist kynnast konunum á Netinu.
Maðurinn segist kynnast konunum á Netinu. Vísir/Getty
Maður sem býr í bakhúsi í Kópavoginum hefur sérhæft sig í því að fullnægja konum með því að örva á þeim G-blettinn.

Í tímaritinu MAN sem kemur í verslanir í dag er viðtal við mann sem hefur sérhæft sig í því að fullnægja konum með því að örva á þeim G-blettinn.

Í viðtalinu segist maðurinn kynnast konunum á Netinu. Hann bjóði þeim til sín þar sem hann nuddar þær svo konurnar slaka djúpt á. Það fari svo eftir tengingunni á milli hans og konunnar hversu langt er farið en hann segist átta sig á því í nuddinu hvort að konan vilji meira.

„Svo strýk ég rassinn og nudda þétt og vinn mig niður lærin. Þarna fer ég að finna hvort hún vill nánari snertingu, ef hún hreyfir mjaðmirnar á móti mér veit ég að ég er velkominn dýpra. Þá fer ég með fingur milli barmanna og strýk snípinn aðeins, hætti svo smá stund til að skapa enn meiri löngun. Þegar ég held áfram að strjúka snípinn og barmana kyssi ég rassinn og gæli við hann á meðan. Ef hún er búin að segja mér að hún vilji G-blettsnudd prófa ég eftir smá örvun að renna tveimur fingrum inn og þreifa eftir G-blettinum,“ segir maðurinn í viðtali við MAN.

Forsíða tímaritsins MAN sem kemur í verslanir í dag.Mynd/MAN
Viðtalið við manninn má lesa í heild í MAN en það er hluti af umfjöllun blaðsins um saflát kvenna sem þær fá við G-bletts-fullnægingu.

Í umfjölluninni er einnig rætt við konur sem hafa haft saflát og segir ein þeirra í viðtali við blaðið:

„Í fyrsta sinn sem þetta gerðist var ég 28 ára. Elskhuginn var alveg með þetta á hreinu. Þetta var partur af valdaleik, ég handjárnuð á hnjánum og hann gjörsamlega hamaðist á mér með höndunum. Rúmið varð rennblautt, ég varð mjög hissa en þessu fylgdi líka algjör sæluvíma. Alveg síðan þetta gerðist fyrst hefur saflát verið partur af mínu kynlífi. Í dag fæ ég oft saflát með fullnægingum, jafnvel þó að ég sé bara að fróa mér með snertingu á sníp. Magnið af vökva er mest ef það er langt síðan ég fékk það síðast.“

Í svari við fyrirspurn um hvað G-bletturinn sé á vefnum Áttavitinn kemur fram að bletturinn sé rétt innan við leggangaopið. Best sé að finna hann ef að konan er kynferðislega æst þar sem bletturinn bólgni út við örvun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×