Glamour

Serena Williams svarar 73 spurningum frá Vogue

Ritstjórn skrifar
Hin stórglæsilega Serena fór á kostum í þættinum frá Vogue.
Hin stórglæsilega Serena fór á kostum í þættinum frá Vogue. Mynd/Vogue
Tennisstjarnan Serena Williams er í nýjasta þætti af "73 Questions" hjá Vogue. Fyrri viðmælendur þáttaseríunni hafa verið Blake Lively, Olivia Munn, Taylor Swift, Lupita Nyong'o og margir fleiri. 

Serena mun byrja með sína eigin fatalínu á næstunni og var spurð út í hana. Hún var einnig spurð mikið út í tennis, andstæðinga sína og helstu kosti þeirra sem hún væri til í að hafa. Uppáhaldslagið hennar er Work með Rihanna og Drake og ef hún væri með einhvern einn hæfileika í viðbót óskar hún þess að geta sungið. 

Við mælum með því að horfa á þetta stórskemmtilega viðtal hér fyrir neðan.






×