Sport

Serena trúlofuð stofnanda Reddit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Serena Williams.
Serena Williams. vísir/getty
Tennisdrottningin Serena Williams notaði samfélagsmiðilinn Reddit til þess að tilkynna að hún væri trúlofuð öðrum stofnanda fyrirtækisins.

Hinn heppni heitir Alexis Ohanian. Parið kynntist í Róm á sínum tíma og Ohanian fór með Serena aftur þangað til þess að biðja hennar. Hún sagði já.

Flottur endir á árinu hjá Williams en hún vann Wimbledon-mótið í sjöunda sinn á árinu og er því búin að vinna 22 risamót á ferlinum.

Hún er sem stendur í öðru sæti heimslistans en það ku standa til bóta á nýju ári.

Hér fyrir neðan er myndin sem Serena lét fylgja færslunni sinni en hægt er að sjá textann og umræðuna sem skapaðist hér á Reddit.

I said yes from isaidyes



Fleiri fréttir

Sjá meira


×