Sport

Serena ill vegna ummæla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Serena Williams segir að sér hafi ekki verið skemmt þegar hún heyrði ummæli Shamil Tarpischev, formanns rússneska tennisambandsins.

Tarpischev kallaði Serenu og systur hennar, Venus, „Williams-bræðurna“ en þær systur hafa verið afar sigursælar í íþróttinni um árabil. Tarpischev sagði að hann hefði aðeins verið að grínast en var engu að síður dæmdur í ársbann og sektaður um 2,4 milljónir króna.

„Mér fannst ummælin afar ógætileg og sérstaklega hlaðin karlrembu og kynþáttafordómum. Þetta er ein birtingamynd eineltis. Ég var afar óánægð með ummælin og held að margir deili skoðun minni,“ sagði Serena Williams.

Serena, sem er 33 ára gömul, hefur unnið átján risamót á ferlinum og Venus sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×