Sport

Serena í úrslit á mettíma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Serena Williams á ferðinni í dag.
Serena Williams á ferðinni í dag. vísir/getty
Serena Williams er komin í úrslit á Wimbledon-mótinu í tennis og var ekki lengi að því.

Það tók hana aðeins 48 mínútur að klára Elena Vesnina í tveim settum, 6-2 og 6-0.

Á eftir kemur í ljós hvort hún mæti systur sinni, Venus, í úrslitum en Venus er að fara að spila við Angelique Kerber.

Serena hefur unnið Wimbledon sex sinnum áður og 21 risamót í heildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×