Handbolti

Serdarusic segist ekki hafa fengið tilboð frá PSG

Noka Serdarusic.
Noka Serdarusic. vísir/getty
Fyrrum þjálfari Kiel, Noka Serdarusic, er sterklega orðaður við franska stórliðið PSG þessa dagana.

Liðið ætlar sér enn stærri hluti á næstu leiktíð og meðal annars hermt að félagið sé búið að kaupa Karabatic-bræðurna, Nikola og Luka.

„Ég hef ekki átt neinar formlegar viðræður við PSG og hef ekki fengið neitt tilboð," sagði Serdarusic.

„Ég myndi alveg viðurkenna það ef það væri eitthvað í gangi. Svo er bara ekki."

Þó svo þessi 64 ára gamli reynslubolti haldi að sér höndum er ljóst að eitthvað er í gangi miðað við alla þá orðróma sem koma úr frönskum fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×