Handbolti

Serbía á toppnum með Íslandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marko Vujin fagnar í leik með Serbíu.
Marko Vujin fagnar í leik með Serbíu. Vísir/AFP
Serbía og Ísland eru jöfn á toppi 4. riðils í undankeppni EM 2016 eftir sigra í sínum leikjum í kvöld.

Íslendingar unnu öruggan sigur á Ísrael, 36-19, eins og lesa má um hér fyrir neðan en Serbía hafði betur gegn Svartfjallalandi, 25-21, í Belgrad.

Darko Djukic og Marko Vujin skoruðu sjö mörk hvor fyrir Serbíu sem var með eins marks forystu í hálfleik, 10-9. Heimamenn gáfu svo í í upphafi síðari hálfleiks og sigurinn var fljótt tryggður eftir það. Fahrudin Melic var markahæstur Svartfellinga með sex mörk.

Ísland mætir næst Svartfellingum ytra á sunnudag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×