Enski boltinn

Sér Pardew eftir þessum sporum? | Sjáðu dansinn

Alan Pardew, knattspyrnustjóri Crystal Palace, fagnaði marki Jason Puncheon með áhugaverðum dansi beint fyrir framan varamannabekk Manchester United en það átti heldur betur eftir að koma í bakið á honum.

Var þetta aðeins í annað skiptið sem Crystal Palace lék til úrslita í FA-bikarnum í sögu félagsins en í bæði skiptin var mótherjinn Manchester United. Í fyrra skiptið var Pardew leikmaður en í dag stýrði hann liðinu á Wembley.

Sjá einnig:Lingard tryggði Manchester United 12. bikarmeistaratitilinn | Sjáðu mörkin

Pardew sló á létta strengi og fór í danshreyfingar sem hafa ekki áður sést hjá þessum litríka stjóra en myndband af þessu má sjá hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×