Lífið

Septemberspá Siggu Kling – Vatnsberi: Þarft orku og umhyggju í ástinni

Elsku hjartans bjartsýni Vatnsberinn minn. Nú er að duga eða drepast! Standa með sjálfum sér í framtíðarsýninni og stökkva á bólakaf út í djúpu laugina. Ég get svo svarið það að það syndir enginn jafn vel og þú þegar þú þorir að taka áhættu og taka stökkið.

Þú skalt einblína á einn hlut í einu. Ekki vera að gera of mikið í einu. Því ef þú ætlar að gera allt í einu þá verður ekki neitt úr neinu! Skrifaðu niður tvö atriði sem þú vilt klára í september og dembdu þér í að klára þau.

Það eru nokkrir sem vilja stoppa þig, setja fótinn fyrir þig og helst fella þig en það er ekkert gaman í þessari lífsins keppni ef allt er auðvelt. Af auðveldu verður ekki neitt! Ef þú getur sagt: Líf mitt er búið að vera svo auðvelt, þá eru líklega ekki margar sögur sem verða skrifaðar í minningargreinarnar þínar.

Þú munt þurfa að taka á öllu sem þú átt til til þess að þú verðir sigurvegari núna í september. Mundu að það er engin leið að sigri sem er laus við hindranir. Hindranirnar sem þú stendur frammi fyrir núna eru bara áskoranir til þess að gera betur. Þú fyllist spennu og adrenalínið flæðir út um allt. Þú veist að þinn tími er kominn.

Ef þú ert að hafa einhverjar áhyggjur af skuldum þá er hægt að semja um allt. Gerðu það bara strax. Núna strax er mottóið þitt í september.

Ekkert pæla í því að það sé að koma vetur, kuldinn og vonda veðrið á ekkert sérstaklega vel við þig. Mér finnst einhvern veginn eins og það eigi eftir að verða gott veður fram að jólum. Það mun gefa þér góða orku. Það verður mikill hraði á þér sem er bæði vont og gott. Þú þyrftir að hafa afnot af litlum helli þar sem væri engin tækni, bara ljós og bækur og þú kæmist ekki neitt. Þú þarft nefnilega stundum að slökkva á hraðanum í kringum þig, allavega á viku fresti til þess að hlaða batteríin.

Þú hefur mikla trú á fólki og það eru ótal margir sem vilja hanga með þér og vera með þér en þú getur ekki hleypt öllum að. Því sumir mergsjúga orkuna þína og það er ekki nógu gott.

Þegar kemur að ástamálunum þarft þú að hafa á hreinu hvað þú ætlar að leggja mikið í ástina. Ekki vera með einhverjum bara af því það er ágætt. Þú þarft manneskju sem gefur þér orku og umhyggju. Og þegar þú gefur ást, þá gefur þú af öllu hjarta. Svo til þess að ástamálin séu á hreinu þarft þú að vera tilbúin til þess að gefa allt hjartað þitt.

Knús og klapp, þín Sigga Kling

Frægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts mannauður.


Tengdar fréttir

Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin

Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×