Lífið

Septemberspá Siggu Kling – Tvíburi: Einhver dularfullur andi yfir þér!

Elsku hjartans Tvíburinn minn. Þetta sumar er aldeilis búið að líða hratt. Þú gætir fundið fyrir smá kvíða yfir því að vetur konungur sé að ganga í garð.

Það er alveg nauðsynlegt fyrir þig að að fara eitthvað og breyta rútínunni þinni því þannig getur þú stytt veturinn.

Þú þarft líka að hafa eitthvað til þess að hlakka til, það heldur í þér drifkraftinum. Það er samt ekki alveg víst að þú hafir peninga til að leggja í sólarferð en það mun breytast. Það mun koma upp í hendurnar á þér möguleiki sem gerir þér kleift að hafa þennan vetur litríkan.

Þú skalt passa þig á því að vera ekki að gera hluti eða haga lífi þínu þannig að þú sért að þóknast öðrum. Það gerir þig óhamingjusaman. Hafðu það alveg á hreinu að það ert þú sem skapar líf þitt. Ef þér finnst eitt augnablik að einhver annar sé að rugga bátnum og stjórna ferðinni, þá skaltu vera mjög ákveðinn og segja nei, þetta vil ég ekki.

Með því yfirstígur þú þær hindranir sem geta komið upp. Þótt þú viljir ekki viðurkenna það, þá ertu svoldið að hafa áhyggjur af því hvað aðrir eru að pæla. Þú ert hræddur um að standa þig ekki nógu vel en þar er hausinn bara að blekkja þig.

Þegar líða tekur á september er smá hristingur í kringum þig og töluvert álag. En um leið og þú tekur ákvörðun um að standa með þér og beita þig ekki þrýstingi, þá kemstu út úr þessu.

Þú verður að athuga að þú ert einstaklega orðheppinn og þú þarft að nýta þér það. Þú hættir við eitthvert verkefni sem þú varst búinn að ákveða að halda í og þér finnst það viss ósigur. En ef þú skoðar það betur þá finnst þér það bara út af því hvaða álit aðrir hafa á þér vegna þess.

Þú getur virst vera svo sterkur og kraftmikill í öllu en undir yfirborðinu ertu með lítið lóuhjarta. Það á margt eftir að breytast núna í september og sérstaklega hugmyndir sem þú hefur um lífið.

Sjálfstæði er mikilvægasti krafturinn sem þú hefur og þú átt eftir að sanna fyrir öðrum hversu sjálfstæður og skapandi þú ert. Þú átt eftir að byggja frama þinn upp, sama svo sem hvað þér finnst vera frami. Þú þarft ekki að vera hræddur við að taka áhættu því þú hefur hæfileika til að sýna öðrum að þú hafir farið rétta leið. Þú þarft fyrst að trúa á orðin þín áður en þú setur þau frá þér.

Það eru töluverðar sveiflur í ástinni. Þú ert mikið að spá í hvort það er þetta sem þú vilt, eða hvað viltu eiginlega? Þú þarft ekki að breyta neinu í ástamálum, þú þarft bara að gera það skiljanlegt hvað þú vilt og hvað þú ætlar að gera. Ef ástin er sönn, þá brotnar hún ekki, ef hún brotnar, þá er hún ekki sönn.

Fyrir þá sem eru á lausu, þá eru sérlega margir sem hrífast af þér í næsta mánuði. Sérstaklega ef þú ert að fara í skóla eða byrja á nýjum vettvangi þar sem er nýtt fólk. Það svífur einhver dulfarfullur andi yfir þér og þú gerir þér ekki grein fyrir því hvað þú átt mikinn séns. Það eru margir í þessu merki sem eiga eftir að hefja ný ástarsambönd, hvort þau verða stutt eða löng get ég ekki séð. En allavega getur þú ekki kvartað yfir því að það sé ekkert að gerast!

Knús og klapp, þín Sigga Kling

Frægir Tvíburar: Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður, Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 13:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar. Einnig má senda inn spurningar á stefanp@365.is.


Tengdar fréttir

Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin

Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×