Lífið

Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin

Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar.

Þú hefur tilhneigingu til að vilja sjá of langt fram í tímann. Þegar þú ert að einbeita þér of mikið að því, þá missirðu máttinn og ekkert verður úr því sem þú ert að gera. Það er alveg á hreinu að fortíðin er ekki til, hún er búin. Framtíðin, enginn hefur farið inn í hana eða veit hvernig hún er. Það eina sem við vitum og þekkjum er nútíðin. Ef þú lærir að halda utan um þig nákvæmlega núna, hressa þig við, leyfa þér hluti og henda út stressinu, þá verður þú svo dásamlega ánægð með útkomuna.

Þú þarft að sjá að lykilatriði í að erfiðleikar leysist er að vera hreinskilin, vera gegnsæ, segja hlutina eins og þeir eru og fela ekki neitt. Þú ert gömul sál, ég segi alltaf að í Steingeitunum megi finna elstu sálirnar.

Þú getur verið sérvitur og þrjósk en það leysir bara alls ekki neitt. Þú þarft að mæta á staðinn, tímasetja hvað þú ætlar að gera í næstu viku og standa við það sem þú ætlar að gera.

Þú þolir ekki annað en að hafa allt á hreinu svo um leið og þú ert búin að gera þetta svona og skipuleggja þig vel þá kemur gleðin. Þú ferð í óvænta ferð sem virkar kannski ekki merkileg en gefur þér engu að síður mikið. Stundum þarf maður bara aðeins að komast í burtu.

Það kemur í ljós að þær manneskjur sem þú hélst að væri illa við þig eru þér miklu hliðhollari en þú gerðir þér grein fyrir. Þú færð tækifæri til að spreyta þig í lífinu og sýna hvað í þér býr. Þú færð þá virðingu sem þú átt skilið og ef þú hefur áhuga á ástinni, þá skaltu milda hjarta þitt og vera ekki dómhörð.

Ekki spá í fortíðinni hjá einhverjum sem þú kynnist eða ert búin að kynnast. Hún skiptir ekki máli og við eigum öll eitt stykki fortíð.

Taktu smá áhættu án þess að þurfa að stjórna öllu. Þú þarft að leika meira, þetta er akkúrat tíminn og þú mátt líka leika þér svolítið við ástina! Lífið er leikur, mundu það elskan mín.

Knús og klapp, þín Sigga Kling.

Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 13:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar. Einnig má senda inn spurningar á stefanp@365.is.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×