Lífið

Septemberspá Siggu Kling – Naut: Ekki sjá eftir neinu!

Elsku hjartans Nautið mitt. Þú ert að sjá það betur dag frá degi hversu sterkt þú ert, þú ert að vinna vel í mörgum málum til þess að styrkja þig. Útgeislun þín gefur frá sér mikla mildi. Þú ert snortið yfir litlu hlutunum og yfir þetta tímabil sé ég að þú fyllist þakklæti þó margt hafi verið djöfullega erfitt.

Þú átt eftir að elska þessa dásamlegu þrjósku sem mun draga þig þangað sem þú vilt fara. Þú skalt alveg sleppa því samt að vera í keppni við alla. Íhugaðu bara að vera besta útgáfan af sjálfu þér, þú getur ekkert getur verið fullkomnara heldur en það.

Mikilvægustu skilaboðin til þín í þessari stjörnuspá eru: Ekki sjá eftir neinu! Það er ástæða fyrir öllu.

Þú ert búið að breyta hárrétt, haltu áfram á þessari braut. Fyrir þig, tilfinninganæma nautið mitt, finnur þú fyrir töluverðri sorg yfir einhverju sem þér finnst vera glatað eða týnt. Þú þarft að æfa þig meira í því að gleyma því erfiða, því sú lífsreynsla sem þú hefur gengið í gegnum gerir þig að þeirri dásamlegu hugrökku manneskju sem þú ert. Þakkaðu fyrir það!

Þú ert náttúrulega heimakærasta merkið samkvæmt lögmálinu. En til þess að efla þig, þá máttu ekki láta þér líða of vel með það að hanga of mikið heima og skapa þröngsýnar venjur í kringum þig.

Lífið er það sem þú venur þig á. Svo ég segi það við þig og mig, nú er akkúrat tímabilið næstu 6 mánuði að setja inn nýjar venjur. Best er að gera lítið í einu, ekki breyta of miklu. Venus er plánetan sem dansar í kringum þig. Þú ert skapað fyrir ástina. Hafðu það samt í huga að þú þarft fyrst að elska sjálft þig áður en þú getur elskað einhverja aðra manneskju.

Fjölskylda þín er það dýrmætasta og það verður betri tenging í kringum þig, meiri sameining og þér líður betur og betur.

Það getur enginn stjórnað þér eða kúgað þig, þú ert tilfinningaríkt og þótt það hafi komið fyrir að tilfinningarnar hafi borið þig ofurliði og þér fundist þú missa máttinn þá sérðu það núna að það hefur í raun bara eflt þig.

Leitaðu eftir vinum sem þú getur treyst, efldu tengslanetið þitt – tvöfaldaðu það að minnsta kosti, því það mun koma þér þangað sem þú þarft.

Knús og klapp, þín Sigga Kling

Fræg Naut: Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 13:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar. Einnig má senda inn spurningar á stefanp@365.is.


Tengdar fréttir

Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin

Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×