Lífið

Septemberspá Siggu Kling – Krabbi: Á að vera alveg skítsama um álit annarra

Elsku hjartans Krabbinn minn. Það er að kvikna mikill eldur og kraftur í kringum þig. Þér fannst ágúst ekki alveg koma með útkomuna sem þú vildir. En september mun svo sannarlega gera það.

Þú ert að setja margt í gang og það er eiginlega bara allt að gerast núna! Það er eins og það sé að koma að einhvers konar fæðingu hjá þér. Þú slakar algjörlega á gagnvart áliti annarra. Þér verður svo skítsama og ef þér er ekki skítsama, þá ætti þér að vera það.

Þú ert að uppskera eitthvað sem þú hefur beðið töluvert lengi eftir, þér finnst svo sannarlega ekki gaman að bíða þannig að það verður svaka uppskeruhátíð!

Þú þarft að fyrirgefa fólki í kringum þig, því ef þú sendir út hatur og biturð þá er það hreinlega eins og að drekka sjálfur eitrið og vonast til þess að það hafi áhrif á manneskjuna sem þér er illa við.

Þú hefur unnið litla sigra á þessu ári og nú er að byrja nýtt tímabil sem byggist á þessum litlu sigrum sem þú hefur unnið þér inn árið 2016. Þú þarft að vera einbeittur í tengslum við frama þinn og ekki gefa neitt eftir. Þú átt eftir að ganga frá þeim mínusum sem hafa dregið úr þér og verður ákaflega stoltur af því.

Heiðarleiki skiptir þig miklu máli og þess vegna skaltu rétta fram sáttahönd. Það er það besta sem þú getur gert.

Þú átt eftir að vera mjög upptekinn af því að lifa lífinu af fullum krafti en þú verður að vita að það er eðlilegt að líða stundum illa. Og það er allt í lagi að leyfa sér það í smátíma, en að standa svo upp aftur og storma af stað.

Þú átt eftir að finna fyrir heppni, sem er engin tilviljun. Þú ert búinn að hafa jákvæð áhrif á fólk sem þú getur ekki ímyndað þér að þú hafir haft áhrif á, haltu þeirri áfram á þeirri braut því það er alltaf sælla að gefa en þiggja.

Trú og trygg fjölskylda er það besta sem þú hefur en fyrir þá sem eru á lausu, þá þurfið þið að skoða hvort þið eruð alltaf að einblína á ákveðna týpu en samt gengur ekkert í ástamálunum. Þá væri sniðugt að skoða einhverja aðra týpu sem er ekki endilega þín týpa og gefa henni séns, því það gæti hentað þér miklu betur. Það er hollt og gott að breyta stundum til!

Knús og klapp, þín Sigga Kling

Frægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 13:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar. Einnig má senda inn spurningar á stefanp@365.is.


Tengdar fréttir

Septemberspá Siggu Kling – Steingeit: Í þér býr elsta sálin

Elsku fallega Steingeitin mín. Það er svolítið algengt að það séu miklar tilfinningar og álag hjá þér í kringum árstíðaskipti; þegar veturinn byrjar, þegar vorið byrjar, þegar sumarið byrjar eða eins og núna, þegar haustið byrjar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×