Tónlist

September sendir frá sér hörkusmell með Steinari

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinar og September með flott lag.
Steinar og September með flott lag. vísir
Hljómsveitin September gaf á dögunum út nýtt lag með tónlistarmanninum Steinari.

Lagið ber nafnið Alive Again og er það strax orðið nokkuð vinsælt hér á landi. Það eru þeir Birgir Steinn Stefánsson, Eyþór Úlfar Þórisson og Andri Þór Jónsson sem mynda saman September og koma þeir allir úr Kópavogi.

September hefur áður gefið út lag með María Ólafs og heitir það Hold My Hand. Þegar lagið Alive Again kom út á YouTube fylgdi í leiðinni textamyndband eftir Jakob Gabríel Þórhallsson og má sjá það hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×