Innlent

Sendu landvörð til að kanna gosstöðvarnar

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Eldgosið í Holuhrauni hefur staðið í um það bil mánuð.
Eldgosið í Holuhrauni hefur staðið í um það bil mánuð. Vísir / Auðunn
Landvörður var sendur að gosstöðvum við Holuhraun til að kanna hvort ný gossprunga hefði opnast í dag. Myndir úr vefmyndavélum Mílu þóttu benda til þess. Það er þó ekki raunin.

„Landvörður á svæðinu fór upp á Vaðöldu til að kanna aðstæður og hann staðfestir að ekki er um nýja sprungu (opnu) að ræða,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands vegna málsins.

Í tilkynningunni er haft eftir landverðinum að hraunáin renni öll saman. „Hraunáin rennur saman og fer öll út í Jökulsá á sama stað. Við það myndast gufubólstrar sem bjarminn frá hrauninu speglast í,“ er haft eftir honum.


Tengdar fréttir

Bárðarbunga gæti tæmt sig á sólarhring

Stærsta mögulega sprengigosið í Bárðarbungu myndi aldrei standa nema í einn til tvo sólarhringa. Þótt það virðist ólíklegt verður að reikna með því versta, segir eldfjallafræðingur. Fólk á ekki að vera í hættu, enda er fjallið langt frá byggðu bóli.

25 þúsund skjálftar: Sá næststærsti reið yfir

„Þetta er miklu stærra gos en við höfum séð bæði á 19. og 20. öld. Við þurfum að bakka aftur að gosinu í Lakagígum til að finna eitthvað sambærilegt,“ segir Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur.

Hraunið miklu stærra en allar byggingar á Íslandi

Eldstöðin í Holuhrauni hefur þegar skilað upp úr jörðinni hrauni sem myndi fylla 8.300 til 10.400 Hallgrímskirkjur. Rúmmál hraunsins er metið allt að því 104 milljón rúmmetrum meira en allar byggingar hér á landi.

Losar meiri brennistein en öll Evrópa

Eldgosið í Holuhrauni er það gasríkasta á Íslandi í eina til tvær aldir. Talið er að öll lönd Evrópu skili af sér minna magni brennisteins á dag. Hraunið er óvenjulega stórt miðað við hvað gosið hefur staðið stutt.

Hraunið myndi þekja bróðurpart Reykjavíkur

Hraunflákinn frá Holuhrauni heldur áfram að stækka og þekur hraunið nú um 40-45 kílómetra. Rúmmálið er metið á um 500 milljón rúmmetra og er gosið eitt að víðáttumesta sem runnið hefur á Íslandi miðað við stuttan gostíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×