Sendu eldri borgurum smáaura og fóru svo að "gambla" með peninga Höskuldur Kári Schram skrifar 9. febrúar 2012 19:38
Helgi Vilhjálmsson í Góu segir að stjórnendur lífeyrissjóðanna hafi misnotað vald sitt á árunum fyrir hrun og því eigi þeir að víkja. Hann íhugar að leggja lífeyrisgreiðslur beint inn á bankabók starfsmanna í stað þess að láta lífeyrissjóðina fá peningana. Helgi hefur gagnrýnt lífeyrissjóðina um árabil og segir að skýrslan um starfsemi þeirra sýni að stjórnendur þeirra hafi ekki valdið hlutverki sínu. „Við eigum þessa peninga og þeir sem eru í lífeyrissjóðum, þeir eiga peningana ekki. Þeir hafa ekki verið úti á ballarhafi að vinna fyrir þessum peningum. Nú er búið að koma í ljós, ég veit ekki hvað ég á að segja, hverslags rugl hefur verið í gangi þarna," segir Helgi. Hann segir nauðsynlegt að stokka upp kerfið „Ég held að þeir hafi gleymt hlutverki sínu. Þeir voru að vinna fyrir eldri borgara og voru að senda þeim smáaura í umslagi á meðan þeir voru að „gambla" með peningana í spilakössum. Verkin tala." Ættu þessir menn að víkja að þínu mati? „Það er engin spurning, það þarf að stokka þetta allt upp." Hann segir að stjórnendur lífeyrissjóðanna hafi misnotað vald sitt. „Ég byrjaði sjálfur að borga í lífeyrissjóð fyrir næstum því 40 árum og fannst þetta mjög sniðugt kerfi. En menn sem hafa stjórnað því, þeir hafa misnotað vald sitt." Helgi íhugar að leggja framvegis lífeyrisgreiðslur beint inn á bankabók starfsmanna í stað þess að láta lífeyrissjóðina fá peningana. Hefurður talað við starfsfólk þitt um þetta? „Sumir eru alveg tilbúnir í þetta. Spurning hvort ég geri bara ekki eitthvað, bara borgi fólki þessa peninga af því einu sinni nefndi ég í viðtali að lífeyrissjóðirnir mættu sleppa einu ári til þess að hjálpa heimilunum á meðan við erum að hugsa. Nei, þeir gerðu allt annað," segir Helgi.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira