Innlent

Sendiherrann kennir hafnabolta á Íslandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Rob Barber, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, mætti með möl af hinum sögufræga Fenway-leikvangi í Boston.
Rob Barber, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, mætti með möl af hinum sögufræga Fenway-leikvangi í Boston. mynd/aðsend
Um 30 manns komu saman í Laugardalnum á laugardaginn til að taka þátt í hafnaboltaæfingu sem þar fór fram. Þetta er í þriðja sinn í vetur sem hópur fólks á ólíkum aldri hefur hist til þess að prófa þessa íþrótt, sem er Íslendingum nokkuð framandi.

Upphafið að æfingunum má rekja til þess að Þórlindur Kjartansson og Bergur Ebbi Benediktsson stofnuðu Samtök íslenskra hafnaboltaáhugamanna fyrir um ári, þegar þeir komust að því að þeir höfðu báðir áhuga á íþróttinni. Þrjátíu manns eru í Facebook-hóp sem þeir stofnuðu í framhaldinu og mæta þeir sem eru í hópnum á æfingarnar.

Á þessari stundu liggur ekki alveg fyrir hvenær fjórða æfingin fer fram. „Við verðum að bera einhverja virðingu fyrir náttúröflunum og árstíðunum en þetta hefur gengið í desember og janúar. Svo við sjáum til hvort við gerum ekki eitthvað í febrúar og mars en alveg klárlega gerum við þetta reglulega þegar fer að vora og í sumar,“ segir Þórlindur í samtali við Fréttablaðið.

Rob Barber, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, er mikill hafnaboltaaðdáandi og hefur tekið þátt í æfingunum hér. Ásamt honum hafa Eric Mayer og Raj Bonifacius leiðbeint hópnum um undirstöðuatriðin og skipulagt leiki sem tengjast íþróttinni. Þórlindur segir að bæði börn og fullorðnir hafi haft nóg fyrir stafni. Hópnum sé skipt upp þannig að börnin fái sérstaka kennslu á meðan þeir eldri spreyta sig á leiknum. Sendiherrann hafi svo séð um að leiðbeina yngri kynslóðinni af einstakri natni og þolinmæði.

Undir lok æfingarinnar á laugardaginn dró sendiherrann fram litla pyngju þar sem í var að finna möl af hinum sögufræga Fenway-leikvangi í Boston. Þórlindur segir að mölinni hafi verið dreift um æfingasvæðið til blessunar og helgunar.

Þórlindur segir að vestanhafs þjóni hafnaboltaíþróttin sama hlutverki og lóan á Íslandi. „Hún er vorboðinn ljúfi sem markar endalok vetrarins og sæta langa sumardaga,“ segir hann og bætir við að Samtök íslenskra hafnaboltaáhugamanna hafi auglýst æfingarnar á Facebook-síðu sinni og allir séu velkomnir að prófa næst þegar æfingar verði haldnar. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×