Innlent

Sendiferðabíll fauk á hliðina á Reykjanesbraut

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ekki er hægt að fjarlægja bílinn vegna veðurs.
Ekki er hægt að fjarlægja bílinn vegna veðurs. Vísir/Daníel Ingi Sigmundsson
Flutningabíll fauk á hliðina á Reykjanesbraut í veðurofsanum sem nú gengur yfir landið. Atvikið átti sér stað á milli afleggjarans að Vogum og afleggjarans að Grindavík

Bíllinn liggur sem stendur á hliðinni við vegarkantinn en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur ekki verið hægt að fjarlægja hann vegna veðursins. 

Atvikið átti sér stað rétt rúmlega hálf tvö í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni slapp ökumaðurinn ómeiddur. 

Fylgstu með veðrinu á veðursíðu Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×