Innlent

Sendibifreið festist í göngum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lögregla sinnir fjölbreyttum verkefnum.
Lögregla sinnir fjölbreyttum verkefnum. Vísir/Róbert
Lögregla fékk í dag tilkynningu um sendibifreið sem hafði fest sig í undirgöngum við Hnoðraholtsbraut. Sendibifreiðin reyndist of há fyrir göngin. Lögreglan fór á staðinn til aðstoðar.

Á öðrum tímanum í dag var lögregla kölluð að Skarfagarði en þar hafði orðið vinnuslys. Maður sem var að vinnu í Skarfagörðum hafði orðið fyrir því óhappi að lyftara var ekið yfir rist hans. Ekki er vitað um afleiðingar þessa eins og stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×