Innlent

Sendi bankanum bréf vegna fjárhagsvandamála foreldra sinna

Sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Hinn sautján ára Elvar Egilsson ákvað að taka upp hanskann fyrir foreldra sína eftir að hafa heyrt af fjárhagsvandamálum þeirra og sendi viðskiptabanka þeirra bréf. Honum þykir óskiljanlegt að bankinn neiti að lána foreldrum hans fyrir húsnæði, þegar afborganir af láni yrðu umtalsvert lægri en leiguverð sem þau nú greiða. 

„Ég sendi fyrirspurn á bankann og spurði hvernig þetta virkar og af hverju þetta sé svona. Ég var frekar pirraður og reiður og fattaði ekki alveg dæmið. Þetta bara gengur ekki upp,“ sagði Elvar í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Elvar var til viðtals ásamt móður sinni, Ragnheiði K. Guðmundsdóttur. Ragnheiður sagði frá því að fjölskyldan hafi verið á meðal þeirra sem misstu húsnæði sitt í hruninu. Þau hjónin hefðu ákveðið að byggja skömmu fyrir hrun en aldrei náð að klára. Þau hefðu því flutt inn í hálfklárað húsið.

Neydd til að láta eignina fara

„Við reyndum ítrekað að selja eignina á markaði, eða í upp undir fjögur ár. Og meira að segja þegar við fengum tilboð í eignina sem var undirveðsett þá hömluðu lánastofnanir því að við myndum fá afléttum eftirstöðvunum sem voru smávægilegar í stóru myndinni,“ sagði Ragnheiður. Hún segir þau hjónin hafa verið þvinguð í það að láta eignina fara og hættu því að borga, líkt og margir aðrir hafi gert á þeim tíma.

„Við erum að greiða gríðarlega háa leigu, eða stóran hluta af okkar ráðstöfunartekjum, sem er dálítið að sliga okkur. Við höfum sem launamenn ekki getað safnað neinum sjóðum upp á nýtt til að safna einhverju eigin fé.“

Ítrekað reynt að semja

Hún segir ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til að semja um skuldirnar. Enginn vilji hafi þó verið fyrir hendi og því hafi eiginmaður hennar farið sjálfur fram á gjaldþrot, fátt annað hafi verið í stöðunni. Hann vinni þó nú í Noregi sem gefi betur í aðra hönd og því hafi þau náð að safna sér einhverju eigin fé upp í íbúðarkaup. Bankinn neiti þó að veita þeim lán.

„Ég fer og leita eftir láni í mínum viðskiptabanka þar sem ég hef verið viðskiptamaður í þrjátíu ár, í Landsbankanum. Ég er með námslán en engar aðrar skuldir. Ég fæ höfnun á lánveitingu á íbúðarkaupum á íbúð sem kostar 38 milljónir, en ég fer fram á 85 prósent lán. Afborganirnar af þeim lánum eru svona sextíu prósent af því sem ég er að borga í leigu í dag, en ég hef staðið undir því í um þrjú ár,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið í viðskiptum við Landsbankann síðustu þrjátíu ár. Hún hafi skrifað útibússtjóra bréf en aldrei fengið nein svör.

Reiðin réttlát

Elvar, sonur Ragnheiðar, heyrði samtal foreldra sinna fyrir tilviljun og hafði því sjálfur samband við bankann, án þess þó að segja foreldrum sínum frá. Fátt var um svör enda ólöglegt að ræða mál annarra við þriðja aðila.

„Hann upplifir sennilega réttláta reiði og skilur kannski ekkert frekar en ég þessa röksemdarfærslu stofnunarinnar,“ segir hún og bætir við að það hafi verið sláandi að sjá bréfið.

„Þá uppgötva ég hversu mikil áhrif svona hefur. Svona ójafnvægi og áhyggjur af fjármálum, hvort sem þær eru stórar eða smáar, hefur áhrif á börnin okkar. Ég varð svolítið slegin og svolítið leið en að sama skapi mjög stolt af honum,“ sagði Ragnheiður.

Viðtalið við þau mæðgin má heyra í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×