Erlent

Senda út neyðarkall eftir vistum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Amon Bundy spjallar hér í símann í Malheur National Wildlife Refuge á fimmtudag.
Amon Bundy spjallar hér í símann í Malheur National Wildlife Refuge á fimmtudag. vísir/getty
Svo virðist vera sem vopnuðu mennirnir í Oregon, sem tóku skrifstofur dýraathvarfs á sitt vald, hafi ekki skipulagt valdarán sitt nógu vel.

Þeir hafa nú, í annað sinn á skömmum tíma, biðlað til föðurlandsvina um að senda sér fjöldann allan af vistum svo þeir geti haldið umsátri sínu áfram.

Vísir hefur reglulega fjallað um mennina sem, undir forystu Bundy-bræðra, berjast gegn harðstjórn og alræði bandarísku alríkisstjórnarinnar.

Sjá einnig: Kalla eftir liðsauka til að „koma í veg fyrir blóðsúthellingu“

Dýraverndunarsamtökin PETA sendu mönnunum vegan-afurðir í síðustu viku en af óskalista mannanna að dæma virðast þeir enn vera svangir og kaldir. Töluvert hefur snjóað á svæðinu, sem er í austurhluta Oregon, og mennirnir hafa sofið í bílum sínum ef marka má frétt Independent um málið.

Umsátrið hefur nú staðið yfir í um átta sólarhringa og í gær sendi Ammon Bundy, annar talsmanna hreyfingarinnar, tölvupóst á stuðningsmenn þar sem hann fór fram á frekari vistir. Í póstinum óskaði hann eftir margvíslegum aðföngum, sem og peningum, en blaðamaður Forbes fékk afrit af póstinum í sínar hendur. Á óskalistanum eru meðal annars:

Á listanum kennir ýmissa grasa
Teppi

Hey

Inniskór

Hnífapör úr plasti

Rakvélar

Þrjár mismunandi gerðir af sígarettum

Lök

Nærföt

Rifinn ostur

Skorinn ostur

Egg („mikil þörf“)

Listann í heild sinni má sjá hér til hliðar.

Sjá einnig: FBI tekur málin í sínar hendur í Oregon



Vopnuðu mennirnir segjast vera að berjast gegn oftæki ríkisstjórnar Bandaríkjanna og vilja að land sem ríkið á verði opnað fyrir íbúum. „Markmið okkar er að skila fólkinu hér réttindum sínum svo það geti nýtt landið og auðlindirnar,“ sagði Ryan Bundy, annar talsmanna hópsins í liðinni viku. „Við erum hér til að koma á reglu, við erum hér til að endurvekja réttindi fólks og það getur farið fram auðveldlega og án átaka,“ sagði Bundy.

Fjölmiðlar í Oregon segja að meðlimir hópsins séu þungvopnaðir, en AP fréttaveitan ræddi við mann sem býr í nærliggjandi bæ. Hann sagðist vita til þess að lögreglumenn í bænum óttist meðlimi hópsins og þá sérstaklega að þeir gætu hefnt sín á börnum lögregluþjónanna.

Ekki er vitað hversu margir menn eru í athvarfinu en fjölmiðlar í Oregon fullyrða að þeir skipti tugum. 


Tengdar fréttir

Vopnaðir menn ögra alríkisstjórninni

Hópur vopnaðra manna hefur náð á sitt vald skrifstofum dýraathvarfs í Oregon. Mennirnir segja markmið sitt vera að berjast gegn harðstjórn og hvetja föðurlandsvini til að ganga til liðs við sig.

FBI tekur málin í sínar hendur í Oregon

Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, stýrir nú lögregluaðgerðum í Oregon-ríki þar sem hópur vopnaðra manna hefur náð skrifstofum dýraathvarfs á sitt vald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×