Innlent

Senda fólk á skriðjökla án mannbrodda

Sveinn Arnarsson skrifar
Íshellaferðum í Vatnajökulsþjóðgarði hefur fjölgað gífurlega síðustu ár og gera nú á annan tug fyrirtækja út á slíkar ferðir.
Íshellaferðum í Vatnajökulsþjóðgarði hefur fjölgað gífurlega síðustu ár og gera nú á annan tug fyrirtækja út á slíkar ferðir. vísir/vilhelm
Dæmi eru um að vanbúnir ferðamenn á vegum fyrirtækja í ferðaþjónustu sæki íshella og skriðjökla heim, án mannbrodda eða aðeins búnir hálkubroddum í Skaftafelli. Vitað er um á annan tug ferðaþjónustufyrirtækja sem gera út á íshellaskoðanir í Skaftafelli innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarðurinn hefur hins vegar ekki nægilega yfirsýn yfir fjölda fyrirtækjanna.

Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, segir fyrirtækjum í íshellaferðum og öðrum ferðum á Skaftafellsjökul hafa fjölgað upp á síðkastið. „Við höfum séð vanbúna ferðamenn en það heyrir til undantekninga. Hins vegar er það svo að við verðum að geta tryggt öryggi ferðamanna,“ segir Regína. „Það er því á herðum ferðaþjónustufyrirtækjanna sjálfra að tryggja öryggi þeirra.“

Á þessu ári hafa komið upp dæmi um ferðaþjónustufyrirtæki með stóra hópa ferðamanna uppi á skriðjöklum án mannbrodda og inni í íshellum. Gæta þarf fyllstu varúðar á slóðum sem þessum. Nýsamþykkt lög um Vatnajökuls­þjóðgarð munu hjálpa til við að kortleggja ferðaþjónustuna í Skaftafelli að mati Regínu. „Nú þurfa ferðaþjónustufyrirtækin að sækja um leyfi til að starfa innan þjóðgarðsins og því getum við fengið mun skýrari yfirsýn yfir þá starfsemi sem þar fer fram. Einnig getum við komið upplýsingum betur til fyrirtækja, bæði um vegi á svæðinu og hættur við jökul,“ segir Regína.

Helga Árnadóttir
Innan Samtaka ferðaþjónustunnar er unnið að því að bæta öryggi ferðamanna á öllum sviðum ferðaþjónustunnar. „Öryggi ferðamanna er forsenda þess að gæði geti skapast og á það sérstaklega við þegar unnið er við erfiðar aðstæður. Við hjá SAF teljum eðlilegt að fyrirtæki tileinki sér núllsýn í öryggismálum þar sem slys og óhöpp eru óásættanleg,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF.

„Ekki er síður mikilvægt að gerðar séu kröfur um öryggisáætlanir ferðaþjónustuaðila með áhættumati ferða. Hvað varðar heimildir til að sinna starfsemi innan þjóðgarða sjáum við fyrir okkur að fyrirtæki geti verið krafin um aðild að Vakanum, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar,“ bætir Helga við.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×