Tónlist

Semur jólalag fyrir fátæka fólkið í þessum gráðuga heimi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Leoncie er búin að gefa út nýtt jólalag sem heitir Christmas Bluff og sem fyrr semur Leoncie lagið og spilar á öll hljóðfæri.

Í færslu á Facebook segir Leoncie að lagið sé samið fyrir allt fátæka fólkið í heiminum.

„Jólin snúast ekki um Guð í þessum rotna, gráðuga, efnislega heimi,“ skrifar hún. „Ég samdi þennan jólasmell fyrir milljarða af fátæku fólki í þessum gráðuga heimi því fátækt fólk er miklu meira en eigingjarnir, gráðugir jólakjánar,“ bætir hún við.

Í myndbandi við lagið rennur textinn eftir skjánum og því getur hver sem er sungið með indversku prinsessunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×