Bíó og sjónvarp

Semur fyrir Tim Burton

Lana Del Rey semur lög í nýjustu mynd Tims Burton.
Lana Del Rey semur lög í nýjustu mynd Tims Burton. Vísir/Getty
Bandaríska tónlistarkonan Lana Del Rey mun semja tvö lög fyrir nýjustu mynd Tims Burton, Big Eyes.

Myndin fjallar um ævi listamannsins Margaret Kane, sem málaði myndir af börnum með stór augu. Meirihluti verka hennar var aftur á móti eignaður þáverandi eiginmanni hennar, Walter.

„Lög Lönu endurspegla svo vel hvernig Margaret leið,“ sagði framleiðandinn og annar handritshöfunda myndarinnar, Larry Karaszewski.

Amy Adams og Christoph Waltz eru í aðalhlutverkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×