Innlent

Semja við Rauða krossinn vegna móttöku flóttafólks

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/aðsend
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi undirrituðu í gær samning um þau verkefni sem Rauði krossinn mun annast vegna móttöku flóttafólks á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.

Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar Íslands verður tekið á móti þremur hópum flóttafólks á þessu ári. Hafnarfjarðarbær tók að sér móttöku sex manna fjölskyldu frá Afganistan á dögunum sem þegar er komin til landsins.

Einnig verður tekið á móti hópi hinsegin flóttafólks frá fjórum löndum og sýrlenskum flóttamönnum sem koma hingað frá Tyrklandi. Reykjavíkurborg mun annast móttöku þessarar hópa. Í hópunum þremur eru samtals 24 einstaklingar; þrettán fullorðnir og ellefu börn.

Þegar tekið er á móti hópum flóttafólks gerir velferðarráðuneytið annars vegar samning við sveitarfélagið þar sem fólkið mun setjast að um ýmsa aðstoð og stuðning því til handa og hins vegar við Rauða krossinn á Íslandi sem einnig kemur að því að veita fólkinu liðsinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×