Viðskipti erlent

Sementsrisi fæddur

Finnur Thorlacius skrifar
Sementsframeiðandinn Holcim í Sviss.
Sementsframeiðandinn Holcim í Sviss. Getty images
Svissnesku og frönsku sementsframleiðendurnir Holcim og Lafarge hafa sameinast og með því verður til stærsti framleiðandi á sementi í öllum heiminum. Velta fyrirtækjanna verður með þessari sameiningu 5.000 milljarðar á ári.

Eigendur hlutabréfa í franska framleiðandanum Lafarge eignast með sameiningunni samsvarandi magn hlutabréfa í Holcim. Höfuðstöðvar sameinaðs fyrirtækis verður í Sviss og hlutabréfin verða skráð á hlutabréfamörkuðum bæði í Zurich og París.

Forstjóri Holcim, Bruno Lafont, verður forstjóri þessa sementsrisa og segir hann að með sameiningunni sé fyrirtækið færara um að vaxa án mikillar áhættu og að eigendur hlutabréfa þess muni vænta hækkunar þeirra. Rekstur sementsfyrirtækja hafa átt undir högg að sækja vegna hækkandi orkuverðs og minni eftirspurnar allt frá hrunárinu 2008 en nú sé aftur kominn tími til sóknar. 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×