Innlent

Sema Erla birtir persónuárásir á Facebook

Bjarki Ármannsson skrifar
Formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar segist ekki ætla að halda hlífiskyldi yfir þeim sem taki þátt í netníði.
Formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar segist ekki ætla að halda hlífiskyldi yfir þeim sem taki þátt í netníði.
„Ég birti þetta vegna þess að ég sé engan tilgang í því að fela mannhatur, eins og oft er að finna á netinu, og fólk verður einfaldlega að standa með því á stærri vettvangi en þau halda oft að þau séu að birta slík ummæli á.“

Þetta skrifar Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og formaður flokksins í Kópavogi, í athyglisverðri færslu á Facebook-síðu sinni frá því í gærkvöldi. Sema, sem er mikill talsmaður fjölmenningar á Íslandi og sjálf af tyrkneskum ættum, birtir þar nokkur ummæli um sig af samfélagsmiðlum og athugasemdakerfum þar sem hún er meðal annars kölluð tæfa, bullukolla og barnaleg. Sema er sögð vilja „múslima-væða þjóðina“ og einn ýjar að því að hún og fjölskylda hennar eigi að sitja inni fyrir fíkniefnasmygl.

„Þegar ég hóf þátttöku í opinberri stjórnmálaumræðu og stuttu síðar afskipti af stjórnmálum fyrir þó nokkru síðan vissi ég að sjálfsögðu út í hvað ég væri að fara og við hverju mátti búast, sérstaklega vegna uppruna míns og nafns,“ skrifar Sema. „Ég lærði fljótt að láta „virka í athugasemdum“ og aðra brjálæðinga í umræðunni ekki hafa of mikil áhrif á mig [...] enda segja persónuárásir ávallt meira um þann sem þær stundar.“

Sema hefur þó nokkuð reglulega birt ummæli sem þessi á Facebook-síðu sinni. Hún segir það ekki gert til að kaupa samúð, enda sé orðið „hálfgert samasemmerki“ milli þátttöku í samfélagsumræðu og netníðs, en henni sé ofboðið og hún ætli ekki að halda hlífiskyldi yfir þeim sem taki þátt í slíku. Hún vonast til þess að mögulega einn eða tveir hugsi sig um áður en þeir endurtaki leikinn.

Færslu Semu Erlu má sjá hér að neðan.

Þegar ég hóf þátttöku í opinberri samfélagsumræðu og stuttu síðar afskipti af stjórnmálum fyrir þó nokkru síðan þá vissi...

Posted by Sema Erla Serdar on 2. janúar 2016

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×