Viðskipti innlent

Selja 10 þúsundasta svefnlækningatækið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tugir milljóna manna þjást af svefnleysi um heim allan. Ódýrara er fyrir heilbrigðisstofnanir að greina svefntruflanir í heimahúsum.
Tugir milljóna manna þjást af svefnleysi um heim allan. Ódýrara er fyrir heilbrigðisstofnanir að greina svefntruflanir í heimahúsum.
Viðskipti Íslenska fyrirtækið Nox Medical náði þeim árangri nú í júlí að tíuþúsundasta Nox T3 lækningatækið var afhent í hendur viðskiptavinar. Nox Medical er hátæknifyrirtæki sem framleiðir lækningabúnað til greiningar á svefntruflunum.

„Þetta er skilgreint sem lækningavara sem er eingöngu notuð af heilbrigðisstarfsfólki. Hún er notuð til að mæla öndunartruflanir í svefni, eða kæfisvefn, sem er orðinn mikill þáttur í heilbrigðisvísindum,“ segir Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Nox Medcial var stofnað árið 2006 á grunni fyrirtækis sem hét Flaga. Helgi Kristbjarnarson læknir stofnaði Flögu rétt rúmum tíu árum fyrr. Þegar bandarískur forstjóri tók við stjórnartaumunum sá hann ekki rekstrargrundvöll fyrir það hér á landi. Það var því flutt til Denver í Colorado. Stór hluti þeirra sem unnu hjá Flögu hér missti vinnuna og úr varð að sjö úr þessum hópi stofnuðu Nox Medical. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú orðnir 40.

Seint á árinu 2008 fór fyrirtækið svo að selja fyrstu vörurnar. Á árunum 2009 til og með ársins 2011 voru tekjurnar um 150 milljónir íslenskra króna en í dag eru þær komnir upp í 1,5 milljarða. „Það sem kannski er óvanalegt við fyrirtæki af þessari stærð er að þetta fyrirtæki er rekið með hagnaði frá fyrsta ári í tekjusköpun,“ segir Pétur. Það er mat stjórnenda félagsins að svefn um 2,5 milljóna manna, um allan heim, hafi verið rannsakaður með þessum íslenska búnaði.

Öll sala félagsins fer fram erlendis í gegnum erlenda samstarfsaðila og eru stærstu markaðirnir í Bandaríkjunum og Evrópu. „Bandaríkin ein og sér eru náttúrlega stærsti markaðurinn. Þar hefur orðið mikil breyting frá því að svefnmælingarnar voru gerðar að langmestu leyti inni á sjúkrahúsum,“ segir Pétur en bætir því við að með tilkomu tækni, eins og Nox T3 tækisins, fari mælingarnar fram í heimahúsum í auknum mæli.

„Stærstu markaðirnir í Evrópu eru Þýskaland og Frakkland,“ bætir Pétur við en segir að einnig séu að opnast markaðir í Kína og Japan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×