Íslenski boltinn

Selfyssingar upp úr fallsæti

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Valorie, þjálfari Selfyssinga, á hliðarlínunni fyrr í sumar.
Valorie, þjálfari Selfyssinga, á hliðarlínunni fyrr í sumar. vísir/anton
Selfyssingar lyftu sér upp í áttunda sæti Pepsi-deildar kvenna eftir markalaust jafntefli gegn Þór/KA á heimavelli í dag en Selfoss berst fyrir lífi sínu í Pepsi-deildinni þessa dagana.

Eftir 0-3 tap KR gegn ÍBV í dag vissu Selfyssingar að stig myndi koma þeim úr fallsæti í bili.

Þór/KA gat með sigri í dag blandað sér í baráttuna um þriðja sætið en hvorugu liði tókst að skora og lauk leiknum með markalausu jafntefli.

Selfoss á erfiðan leik gegn Val í næstu umferð áður en liðið mætir Fylki í lokaumferðinni sem gæti einfaldlega orðið úrslitaleikur upp á sæti liðsins í deild þeirra bestu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×