Handbolti

Selfoss vann öruggan sigur í Árbænum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Hrafnhildur var óstöðvandi í kvöld.
Hrafnhildur var óstöðvandi í kvöld. vísir/stefán
Selfoss lagði Fylki 30-21 í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld. Selfoss var 17-10 yfir í hálfleik.

Bæði lið voru með 4 stig í neðstu sætum deildarinnar fyrir leikinn en spennan í leiknum var ekki í samræmi við það.

Eins og tölurnar gefa til kynna var Selfoss mun sterkara liðið í kvöld og vann sanngjarnan sigur. Selfoss því komið með 6 stig og er tveimur stigum á eftir Gróttu í næst neðsta sæti deildarinnar.

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir fór mikinn fyrir Selfoss og skoraði 11 mörk. Carmen Palamariu skoraði 7 og Dijana Radojevic 6.

Christine Rishaug skoraði 9 mörk fyrir Fylki og Hildur Karen Jóhannsdóttir 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×